Forsætisráðuneytið hefur skipað þau Drífu Hjartardóttur, fyrrverandi alþingismann, Sigríði Snævarr, fyrrverandi sendiherra, og Sigurbjörn Árna Arngrímsson, skólameistara, í orðunefnd.
Ákvörðunin er tekin í samráði Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, að því er kemur fram í tilkynningu forsætisráðuneytisins á vef stjórnarráðs Íslands.
Þar segir jafnframt að skipunartími þriggja nefndarmanna, þeirra Guðrúnar Nordal, forstöðumanns, Jóns Egils Egilssonar, fyrrverandi sendiherra, og Svanfríðar Jónasdóttur, fyrrverandi alþingismanns, renni senn út.
Orðunefnd fer með málefni hinnar Íslensku fálkaorðu og gerir tillögur til forseta Íslands um veitingu orðunnar.