800 milljónir í fröllutoll á tveimur og hálfu ári

Rúmlega 800 milljónir króna hafa farið í tolla af frönskum …
Rúmlega 800 milljónir króna hafa farið í tolla af frönskum kartöflum á tveimur og hálfu ári. AFP

Íslenskir neytendur greiddu rúmlega 800 milljónir króna í tolla af frönskum kartöflum á árunum 2020 og 2021 og fyrstu sjö mánuðum ársins 2022, samkvæmt útreikningum Félags atvinnurekenda, byggðum á tölum Hagstofunnar um innflutning.

Félagið segir að tollar hækki innflutningsverð franskra kartaflna um ríflega 46% og útsöluverð til neytenda hækki í samræmi við það. Verndartollur á franskar kartöflur verndar ekkert lengur eftir að eini innlendi framleiðandi vörunnar hætti framleiðslu.

Vakin er athygli á því í greininni að fullur tollur á franskar kartöflur er 76% og stendur í vegi fyrir innflutningi frá ríkjum sem ekki hafa fríverslunarsamning við Ísland um lægri toll. Tölur Hagstofunnar sýna að innflutningur frá þeim ríkjum er hverfandi. Innflutningurinn kemur nánast eingöngu frá ríkjum Evrópusambandsins og Kanada, en samkvæmt fríverslunarsamningum er tollur á franskar kartöflur frá þeim ríkjum „aðeins“ 46%.

Þessar tölur sýna vel að það er talsvert í húfi fyrir íslenska neytendur, verslunina og veitingageirann að fella niður þennan verndartoll sem ekkert verndar lengur. Tollarnir nema 300-400 milljónum á ári og á tímum þegar matarverð hækkar stöðugt munar um slíkar fjárhæðir,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, í greininni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert