Steen Magnús yfirlæknir heila- og taugaskurðlækninga

Steen Magnús Friðriksson.
Steen Magnús Friðriksson. Ljósmynd/Landspítalinn

Steen Magnús Friðriksson hefur verið ráðinn yfirlæknir heila- og taugaskurðlækninga á Landspítalanum.

Steen Magnús lauk námi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1986. Hann lauk sérnámi í heila- og taugaskurðlækningum við háskólasjúkrahúsið í Linköping, Svíþjóð árið 1995 og varði doktorsverkefni í heila- og taugaskurðlækningum við háskólann í Linköping, Svíþjóð árið 2004. Hann lauk svo háskólanámi frá Harvard University í stjórnun skurðlækninga 2019.

Steen hefur frá árinu 2005 verið starfandi yfirlæknir taugagjörgæslu og frá 2016 yfirlæknir heila- og taugaskurðlækninga á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg í Svíþjóð að því er fram kemur á vef Landspítalans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert