„Ég held að oft séu tónlistarmenn, og sérstaklega jazzarar sem eru oft að pæla í svona nuance-um í tónlist, góðir kokkar. Já, klárlega,“ svaraði myndlistar- og tónlistarmaðurinn Kristinn Arnar Sigurðsson, betur þekktur sem Krassasig, spurður hvort hann áliti tónlistarmenn góða kokka.
Um sé að ræða nákvæmnisvinnu sem bera megi saman.
Kristinn Arnar var gestur Dagmála, frétta- og menningarlífsþáttar Morgunblaðsins þar sem hann fór yfir tónlistina, leikmyndagerð og allt þar á milli.
Kristinn, sem hefur undanfarið gert það gott sem leikmyndahönnuður fyrir tónlistarmenn á borð við Bríeti og Of Monsters and Men, vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu sem væntanleg er í lok árs.
Færðist samtalið að finnskri Muurikka-pönnu Kristins. „Ég hef mikið verið að taka þetta með mér og elda á eins skrítnum stöðum og hægt er,“ sagði hann. Skildi hann þó gasbrennarann eftir heima, enda nægur hiti frá glóandi hrauninu til að elda.
„Setti pönnuna á góðan stað, storknað hraun þar sem það var bráðið hraun undir. Ég gerði þarna tagliatelle bolognese.“
Ítalskur réttur á íslensku hrauni?
„Já, nákvæmlega.“
Hægt er að sjá viðtalið við Kristinn Arnar með því að smella hér:
Instagram-færsla af réttinum fræga: