Samningseiningar BSRB komu saman til fundar í húsnæði BSRB í gær til að ræða helstu áherslur fyrir komandi kjarasamningsviðræður.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef BSRB.
Þar segir að nokkur aðildarfélaga BSRB séu með lausa samninga á haustmánuðum en meirihluti samninga aðildarfélaga BSRB við ríki og sveitarfélög eru lausir í mars á næsta ári.
Hagfræðingar BSRB, þær Heiður Margrét Björnsdóttir og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, héldu erindi í gær þar sem þær fóru yfir stöðuna í aðdraganda kjarasamninga, s.s. helstu efnahagsstærðir, velsæld, húsnæðismál, barnabætur, launaþróun, launahlutfall og kynbundin launamun.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, ræddi einnig um skipulag starfs samningseininganna á næstu vikum.
„Í síðustu kjarasamningum var samið um styttingu vinnuvikunnar og framundan tekur við mat á áhrifum þeirra breytinga. Fram kom á fundinum að það er eitt helsta atriðið sem brennur á félagsfólki aðildarfélaga svo ákveðið var að koma á fót vinnuhópi sem hefur það hlutverk að móta áherslur bandalagsins varðandi styttri vinnuviku fyrir næstu kjarasamninga,“ segir Sonja Ýr í tilkynningunni.
„Þetta var góður fundur og fundarmenn voru sammála um þau málefni sem við ætlum að hefja undirbúning á. Aðildarfélögin eru á mismunandi stað í undirbúningi eftir því hvenær samningarnir eru lausir en vilji er til þess að vinna saman að þeim málum sem varða sameiginlega hagsmuni félagsfólks aðildarfélaganna, hvort sem er gagnvart viðsemjendum eða stjórnvöldum“, er einnig haft eftir Sonju Ýr.