Verkefni sem miðar að því að vinna að samræmdu verklagi og úrræðum við móttöku þeirra sem leita til heilbrigðisstofnana landsins vegna kynferðisofbeldis hefur verið komið á fót.
Drífu Jónasdóttur, sérfræðingi í heilbrigðismálaráðuneytinu, hefur verið falið að leiða verkefnið. Þá er gert ráð fyrir að tillögur um samræmda verkferla og úrræði við móttöku þeirra sem leita aðstoðar vegna kynferðisofbeldis innan heilbrigðisþjónustunnar liggi fyrir í lok ársins og verði þá kynntar heilbrigðisráðherra.
Vakin er athygli á því í tilkynningu að liður í verkefninu verði að kortleggja og skýra afgreiðslu áverkavottorða og hvernig aðkomu réttargæslumanna skuli háttað í ofbeldismálum, þar með töldum kynferðisbrotamálum. Í samræmdu verklagi verður sérstaklega hugað að fólki sem er í viðkvæmri stöðu, s.s. vegna fötlunar, uppruna, kynhneigðar, kynvitundar og aldurs.