Beint: Setning Alþingis

153. löggjafarþing Alþingis verður sett í dag og mun athöfnin …
153. löggjafarþing Alþingis verður sett í dag og mun athöfnin að þessu sinni taka mið af því sem var fyrir heimsfaraldurinn. Starfsmaður þingsins sést hér koma stóli forsetans fyrir á sínum stað við undirbúning í þingsal í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alþingi verður sett í dag og hefst þingsetningarathöfnin kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Hægt er að fylgjast með athöfninni í beinni útsendingu hér fyrir neðan. 

Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.

Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, predikar og biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, og séra Elínborg Sturludóttir, prestur í Dómkirkjunni, þjóna fyrir altari. Dómorganistinn Kári Þormar leikur á orgel og Kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 153. löggjafarþing. Graduale Nobili syngur við þingsetningarathöfnina, undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 15:30. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður m.a. hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2023 útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar

Kl. 13:25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13:30 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Kl. 14:05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.

  • Graduale Nobili syngur Hjá lygnri móðu. Lag: Jón Ásgeirsson. Ljóð: Halldór Kiljan Laxness.
  • Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp
  • Graduale Nobili syngur Vökuró. Lag: Jórunn Viðar. Útsetning: Þorvaldur Örn Davíðsson. Ljóð: Jakobína Sigurðardóttir.
  • Forseti Alþingis flytur minningarorð um látna þingmenn
  • Graduale Nobili syngur Hvíld. Lag: Hugi Guðmundsson. Ljóð: Snorri Hjartarson.
  • Forseti Alþingis stýrir þingfundi, býður þingmenn velkomna og flytur ávarp.
  • Kl. 14:45 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 15:30.

Framhald þingsetningarfundar

Kl. 15:30 Útbýting fjárlagafrumvarps 2023, tilkynningar og hlutað um sæti þingmanna.
Kl. 15:50 Fundi slitið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert