Í heild sinni er Geysissvæðið þjóðargersemi. Verndargildi þess er hátt, bæði á lands- og heimsvísu. Helstu forsendur fyrir vernd svæðisins eru jarðhitinn og goshverirnir, þá fyrst og fremst Geysir. Uppbygging innviða á svo að leiða gesti um svæðið og tryggja að verndargildi þess haldist.
Þetta kom fram í máli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við athöfn við Geysi í Haukadal í gær. Þar staðfestu þau Guðlaugur og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra með undirritun sinni stjórnunar- og verndaráætlun Geysissvæðisins. Segja má að hún sé eins konar framhald af friðlýsingu svæðisins sem tók gildi 17. júní 2020.
Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.