Spáð er norðan 3 til 8 metrum á sekúndu í dag, en heldur hvassara verður austast.
Bjart verður með köflum, en lítilsháttar rigning norðaustanlands og skúrir á Suðausturlandi. Hiti verður á bilinu 4 til 13 stig, mildast á Suðurlandi.
Fremur hæg breytileg átt verður á morgun og víða léttskýjað. Hiti verður á bilinu 6 til 12 stig yfir daginn.