Minnast Elísabetar drottningar í Hallgrímskirkju

Biskupsstofa, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra og Hallgrímskirkja standa fyrir minningarathöfn um Bretadrottningu …
Biskupsstofa, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra og Hallgrímskirkja standa fyrir minningarathöfn um Bretadrottningu á sunnudaginn. AFP/Andy Buchanan

Biskupsstofa, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra og Hallgrímskirkja munu standa fyrir minningarathöfn um Elísabetu drottningu sunnudaginn 18. september klukkan 20:00. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Biskupsstofu.

Athöfnin fer fram í Hallgrímskirkju, en sérstök tengsl eru á milli kirkjunnar og Ensku biskupakirkjunnar. Í Hallgrímskirkju hafa enskir jólasöngvar verið sungnir ár hvert síðan skömmu eftir að kórkjallari kirkjunnar var vígður. Í kirkjunni hafa anglíkanskar messur verið haldnar af og til með stuttum hléum, en samfellt frá árinu 2001 einu sinni í mánuði.

Organisti Hallgrímskirkju mun leika á orgelið og söngfólk úr Kór Hallgrímskirkju syngur.

Við athöfnina munu þjóna þau sr. Bjarni Þór Bjarnason, sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, sr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir.

Fólk getur tendrað ljós inni í kirkjunni til minningar um drottninguna.

Athöfnin fer fram á ensku og sálmarnir sem verða sungnir eiga það sammerkt að hafa verið uppáhaldssálmar Elísabetar drottningar. Auk þess mun breski sendiherrann vera við athöfnina.

Allir eru hjartanlega velkomnir í Hallgrímskirkju þetta sunnudagskvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert