Friðlýsa 5,26 ferkílómetra á höfuðborgarsvæðinu

Viðstödd undirskriftina voru, auk ráðherra og ráðuneytisstjóra, fulltrúar sveitastjórna Mosfellsbæjar …
Viðstödd undirskriftina voru, auk ráðherra og ráðuneytisstjóra, fulltrúar sveitastjórna Mosfellsbæjar og Reykjavíkurborgar, auk starfsmanna ráðuneytis, Umhverfisstofunar og borgarinnar. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag, á Degi íslenskrar náttúru, friðlýsingu Blikastaðakróar - Leiruvogs í Grafarvogi. Friðlýsingin er unnin í samstarfi ráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, Reykjavíkurborgar og Mosfellsbæjar. 

Friðlýsta svæðið liggur á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar og er 5,26 ferkílómetrar að stærð. Það hefur hátt verndargildi sem felst einkum í grunnsævi, víðáttumiklum leirum og miklum sjávarfitjum. Svæðið er mikilvægur viðkomustaður farfugla, að því er ráðuneytið greinir frá.

Svæðið er á náttúruminjaskrá og á skrá yfir alþjóðlega mikilvæg …
Svæðið er á náttúruminjaskrá og á skrá yfir alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði, en aðliggjandi er friðlandið Varmárósar sem friðlýst var árið 1980 og stækkað verulega vorið 2021. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Landselir tíðir gestir

Fjörusvæðin einkennast af fjölbreyttum vistgerðum, leirum, þangfjörum, kræklingaáreyrum og sandfjörum sem eru lífauðugar og laða að fjölbreytt fuglalíf.

Leirurnar eru meðal fárra óraskaðra leira á höfuðborgarsvæðinu, en í leirusetinu er ríkulegt samfélag sjávarhryggleysingja m.a. ýmis skeldýr og burstaormar, þ.m.t. hinn sjaldgæfi risaskeri. Þá er þar að finna sjávarfitjar sem eru með hátt verndargildi og sjaldgæfar plöntutegundir.

Einnig eru landselir tíðir gestir á svæðinu, sem er mikilvægt og vinsælt útivistarsvæði með tilkomumikið útsýni, segir ennfremur.

Kort/Map.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert