Ómar fékk viðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Ómar tók við viðurkenningunni frá Guðlaugi Þór.
Ómar tók við viðurkenningunni frá Guðlaugi Þór. Ljósmynd/Aðsend

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veitti í dag, á Degi íslenskrar náttúru, Ómari Ragnarssyni náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Er þetta í þrettánda sinn sem náttúruverndarviðurkenningin er afhent.

Ómar er landsmönnum vel kunnur og var í störfum sínum á fjölmiðlum iðinn við að vekja athygli á hinum ýmsu náttúruperlum landsins, áður en hann hóf baráttu sína fyrir náttúruvernd. 

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn 16. september ár hvert, og varð dagsetningin fyrir valinu þar sem um er að ræða fæðingardag Ómars.

Fært þjóðinni náttúruundur heim í stofu

Ómar þakkaði fyrir sig.
Ómar þakkaði fyrir sig. Ljósmynd/Aðsend

Í máli ráðherra við athöfnina í dag kom fram að Ómari væri í lófa lagið að vekja athygli á málefnum og að hann hafi fært þjóðinni hvert náttúruundrið á fætur öðru, alla leið heim í stofu. Jafnt með Stikluþáttum sínum og öðrum myndum um náttúruvernd, sem og fréttaefni.

Þannig hafi Ómar myndað Holuhraun áður en þar fór að gjósa og komið að Grímsvatnagosinu áður en nokkur annar kom þar að.

Eins hafi Ómar verið ötull við að vekja athygli á rafknúnum farartækjum hin síðari ár og hafi til að mynda ferðast árið 2015 á rafhjóli frá Reykjavík til Akureyrar, í ferðalagi sem hann nefndi „Aðgerð orkuskipti“, þá orðinn 75 ára.

Brautryðjandi í rafbílum

„Þá er Ómar brautryðjandi í notkun rafbíla á Íslandi, kynnti ef minnið svíkur ekki rafbíl hér fyrir nokkrum áratugum síðan, og hefur undanfarin ár keyrt um á rafmagnsbílum. Hann sagði einmitt í viðtali fyrir nokkrum árum, og var því á undan okkur stjórnvöldum sem nú erum að takast á við málið, að það væri ekki nóg að rafmagnsbílar væru bara fyrir þá efnameiri. Huga þyrfti að „rafbíl litla mannsins“, sagði Guðlaugur í rökstuðningi sínum.

„Íslensk náttúra væri svo miklu fátækari ef ekki væri fyrir eldhuga sem eru tilbúnir að leggja allt í sölurnar fyrir hana. Ég eins og margir Íslendingar erum svo heppin að hafa átt Ómar sem glugga inn í hluti sem eru svo ótrúlega mikilvægir en fáir sinntu. Einstaklingar skipta máli og skýrt dæmi um það, er Ómar Ragnarsson. Það verður aldrei hægt að mæla það hvað hann hefur gert, með sínum einstaka hætti, fyrir íslenska náttúru. Mín kynslóð og margar fleiri fengum að kynnast náttúru Íslands vegna áhuga og atorku Ómars Ragnarssonar. Fyrir það er ég þakklátur.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert