Teitur fer frá Jóni til ríkisstjórnarinnar

Teitur Björn Einarsson er nýr aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar.
Teitur Björn Einarsson er nýr aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar.

Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, en hann hefur undanfarið starfað sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Verða aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar þar með þrír.

Teitur Björn mun í nýju hlutverki meðal annars sinna verkefnum á sviði sjálfbærni og þjóðaröryggismála auk þess að vinna að samhæfingu mála ásamt öðrum aðstoðarmönnum.

Teitur Björn var aðstoðarmaður dómsmálaráðherra frá því í febrúar, en áður starfaði hann sem lögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni og sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Þá hefur hann setið á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og er nú varaþingmaður flokksins.

Aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar eru nú þrír, en ásamt Teiti Birni er Henný Hinz aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar á sviði vinnumarkaðs-, efnahags- og loftslagsmála og Dagný Jónsdóttir aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar um samhæfingu mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert