Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, mun skipa starfshóp sem ætlað er greina núverandi starfs- og menntunartækifæri fatlaðs fólks með tilliti til þess hvað þurfi að bæta og koma með tillögur að aðgerðum. Er markmið hópsins að auka náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk.
Hópurinn verður skipaður í samráði við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og barnamálaráðherra, að því er fram kemur í tilkynningu Stjórnarráðsins.
Tillögunum er ætlað að falla að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og áherslum sem fram koma í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um menntun og atvinnuþátttöku fatlaðs fólks. Markmiðið er að fatlað fólk geti tekið fullan þátt í námi og á vinnumarkaði á eigin forsendum.
Í tilkynningunni segir að við störf hópsins verði hugað að samspili við störf samhæfingarnefndar um velferð og virkni á vinnumarkaði sem fjallar meðal annars um mögulegar leiðir til að fjölga sveigjanlegum störfum og hlutastörfum á vinnumarkaði, en félags- og vinnumarkaðsráðherra setti hana á fót í júlí síðastliðnum.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið mun leiða hópinn en gert er ráð fyrir að í honum verði fulltrúar frá ofangreindum ráðuneytum sem og fulltrúar frá öðrum ráðuneytum og stofnunum sem að málaflokknum koma, auk fulltrúa frá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, samtökum aðila vinnumarkaðarins og fræðsluaðilum.