Enginn byssumaður reyndist vera í Kópavogi

Atvikið átti sér stað í dag.
Atvikið átti sér stað í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikinn viðbúnað í vesturbæ Kópavogs á sjötta tímanum í dag eftir að tilkynnt var um vopnaðan mann á göngu á Kársnesbraut, en tilkynnandi kvaðst jafnframt hafa heyrt skothvell.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að málið hafi verið metið mjög alvarlegt og var viðbúnaður í samræmi við það, en lögreglumenn vopnuðust og sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til eins og venjan er við aðstæður sem þessar.

Í framhaldinu var maður handtekinn við hús við götuna, en fljótt kom í ljós að um misskilning var að ræða og reyndist enginn byssumaður yfirhöfuð hafa verið þarna á ferð í Kópavogi.

Kemur fram að manninum sem var handtekinn, og fjölskyldu hans, hafi verið mjög brugðið við aðgerðir lögreglu og því hafi verið kallað eftir áfallahjálp til að takast á við þessa óþægilegu atburði dagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert