„Erum í bandalagi utan um kjarnavopn“

Andrés gagnrýndi Atlantshafsbandalagið á þingfundi í dag.
Andrés gagnrýndi Atlantshafsbandalagið á þingfundi í dag. mbl.is/Arnþór

Andrés Jónsson, þingmaður Pírata og varaformaður Íslandsdeildar Atlantshafsbandalagsins (NATO) telur að Ísland þurfi að nota rödd sína til þess að hafna kjarnavopnum, í tilefni hótana Pútíns Rússlandsforseta sem fram komu í ávarpi forsetans í dag en þar minnti hann á að landið byggi yfir kjarnavopnum. 

„Staðan er nefnilega sú að meðan kjarnavopn eru samþykkt sem hluti af heimi mannfólksins þá getum við alltaf staðið frammi fyrir þeim veruleika að brjálæðingar eins og Pútín búi yfir þeim og geti beitt þeim,“ sagði Andrés í umræðu um störf þingsins í dag. 

„Við erum í bandalagi utan um kjarnavopn“

„Það er staða sem við getum ekki sætt okkur við. Hvað kemur þetta litla Íslandi við? Við erum nefnilega í bandalagi utan um kjarnavopn. NATO hýsir hluta þeirra ríkja sem búa yfri þessum gereyðingarvopnum og er hluti af þeim hagsmunaöflum sem berjast gegn beru banni gegn kjarnavopnum í heiminum,“ sagði Andrés og bætti við að Ísland hafi ekki mætt á aðildarríkjafund samnings Sameinuðu þjóðanna um kjarnavopn, ásamt öðrum NATO-ríkjum. 

„Þetta getur ekki gengið lengur, herra forseti. Ísland, sem segist vilja tala fyrir friðsamlegum lausnum, þarf að nota rödd sína til að hafna kjarnavopnum. Á meðan við erum innan NATO þá þýðir það að hafna því að NATO normalíseri kjarnavopn. Það geta fulltrúar okkar innan NATO gert án þess einu sinni að segja sig úr NATO,“ sagði hann.

Þannig hefði Ísland getað sleppt því að skrifa undir yfirlýsingar þar sem sagt væri að kjarnavopn væru kjarninn í stefnu bandalagsins eins og hafi gerst á leiðtogafundi í vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert