Viðbúnaður er í Mosfellsbæ þar sem sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðar lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í aðgerð á iðnaðarsvæði. Þetta staðfestir Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra.
Stundin greindi frá aðgerðinni rétt fyrir klukkan tvö í dag.
Fyrr í dag var greint frá því að sérsveitin hefði handtekið mann í hádeginu í Holtasmára í Kópavogi.
Að sögn Gunnars gat hann ekki upplýst um hvort málin væru tengd en von er á tilkynningu frá lögreglu síðar í dag.