Tólf manns voru kallaðir til skýrslutöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun í máli fimmmenninga sem eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfelld fíkniefnalagabrot, svokölluðu saltdreifaramáli.
Fram kemur í ákærunni að þrír þeirra hafi í byrjun árs 2020 staðið saman að innflutningi á saltdreifara, sem í voru faldir 53 lítrar af amfetamínvökva, hingað til lands með Norrænu frá Hollandi í félagi með tveimur óþekktum erlendum aðilum. Mennirnir þrír hafi tekið á móti tækinu og fíkniefnunum hérlendis og geymt á Hellu. Í samvinnu við óþekktan íslenskan aðila hafi þeir fjarlægt amfetamínvökvann úr saltdreifaranum og framleitt allt að 117,5 kg af amfetamíni í sölu- og dreifingarskyni.
Mennirnir þrír neituðu því allir að hafa staðið að innflutningi á saltdreifaranum fyrir héraðsdómi í fyrradag. Enginn hinna ákærðu bar vitni í morgun.
Sumir þeirra sem báru vitni í morgun gerðu það í gegnum fjarskiptaforrit eða með símtali á meðan aðrir mættu í dómsalinn. Þar sátu þeir mislengi og svöruðu spurningum sækjanda og verjenda.
Fyrrverandi starfsmaður Smyril Line var á meðal þeirra vitna sem voru spurð út í saltdreifarann. Hann sagðist hafa farmskráð sendinguna þegar hún kom til landsins frá Hollandi. Óeðlilegt hafi verið að ekki náðist í þann sem virtist eiga að fá saltdreifarann.
Sölumaður innflutningsfyrirtækisins greindi frá því að erlendur vélasali hafi selt útlensku fólki saltdreifara, sem væri staðsettur á bryggjunni í Þorlákshöfn og enginn hafi tekið á móti honum. Vildi hann því selja saltdreifarann öðrum og spurði hvort sölumaðurinn gæti selt hann fyrir sig. Síðar sagðist erlendi vélasalinn hafa náð í kaupanda.
Greint var frá því síðar við skýrslutökurnar að saltdreifarinn hafi á endanum verið sóttur á opið svæði á bryggjunni í Þorlákshöfn.
Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn var kallaður inn sem vitni í tengslum við bílskúr í Hafnarfirði. Einn fimmmenninganna er ákærður fyrir að hafa geymt þar ýmis fíkniefni í sölu- og dreifingarskyni, þar á meðal amfetamín, kókaín og MDMA.
Eiginkona eins þeirra sem ákærðir eru í málinu var einnig kölluð inn sem vitni en hún baðst undan því að gefa skýrslu og fékk því að fara án þess að svara spurningum.
Aðalmeðferð í málinu, sem hófst á mánudaginn, átti að ljúka í dag með málflutningi verjenda og sækjanda. Verjendur sögðust tilbúnir til að flytja málið í dag en sækjandi óskaði eftir fresti. Ákvað dómarinn Barbara Björnsdóttir að fresta málflutningi þangað til í fyrramálið.