Atvinnuleysi 4,5% í ágúst

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,4 prósentur á milli mánaða.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,4 prósentur á milli mánaða. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Atvinnuleysi í ágúst var 4,5% í árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands.

Þar mældist árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka 79,5% og hlutfall starfandi 76%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,4 prósentur á milli mánaða.

Síðustu sex mánuði hefur leitni árstíðaleiðrétts atvinnuleysis aukist um 0,2 prósentustig en leitni hlutfalls starfandi hefur dregist saman um 0,7 prósentustig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert