Brjóstamiðstöð Landspítala opnuð

Miðstöðin var opnuð í gær.
Miðstöðin var opnuð í gær. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ný brjóstamiðstöð Landspítala var formlega opnuð í gær. Í miðstöðinni fer fram heildstæð heilbrigðisþjónusta og þverfagleg teymisvinna, að því er segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. 

Undirbúningur að opnun stöðvarinnar hefur staðið yfir um nokkurt skeið, en ráðast þurfti í húsnæðisbreytingar, breytingar á vinnulagi og flutning á fyrri starfsemi undir sama þak.

Stuðli að betri samfellu í þjónustu

Meðal þeirrar heilbrigðisþjónustu sem er í boði á hinni nýju brjóstamiðstöð er brjóstaskimun, brjóstamyndgreining, greiningar á sjúkdómum og öflug göngudeildarþjónusta. Miðstöðin heldur utan um fjölbreytta þjónustu tengdum ýmsum sjúkdómum í brjóstum, sinnir þjónustu úti á landi og fólki sem er í áhættuhópi á að fá krabbamein vegna stökkbreytinga í genum.

Í tilkynningunni segir að þetta nýja fyrirkomulag stuðli að betri samfellu í þjónustunni og feli í sér margvísleg samlegðaráhrif. Gagnreynd og einstaklingsmiðuð nálgun, teymisvinna og stöðug umbótavegferð geri brjóstamiðstöð Landspítala vel til þess fallna að framkvæma skimanir fyrir krabbameini í brjóstum og sinna metnaðarfullri þjónustu.

Öflugt nýsköpunarstarf á stöðinni

Á brjóstamiðstöðinni verður einnig starfrækt öflugt nýsköpunar- og brautryðjendastarf, en ýmsar tæknilausnir sem nú þegar eru komnar í notkun voru kynntar á opnunarhátíð stöðvarinnar í gær.

Nýtt Landspítala-smáforrit verður einnig tekið til notkunar á brjóstamiðstöðinni fljótlega. Er talið að það verði bylting í stafrænni upplýsingagjöf og öllu utanumhaldi fyrir einstaklinga sem þurfa á þjónustunni að halda. 

Í tilkynningunni kemur einnig fram að brjóstakrabbamein sé algengasta krabbameinið hjá konum hér á landi. Því fyrr sem sjúkdómurinn finnist því betri séu lífslíkurnar. Skipuleg skimun sé því afar mikilvæg til þess að finna og greina sjúkdóminn snemma, en heilbrigðisráðuneytið vonast til þess að þetta nýja fyrirkomulag hvetji konur til að mæta í ríkara mæli í skimun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert