Útköllin færast í austur

Björgunarsveitarmenn þurftu að sinna þó nokkrum útköllum í nótt vegna …
Björgunarsveitarmenn þurftu að sinna þó nokkrum útköllum í nótt vegna mikils hvassviðris. Ljósmynd/Sigurður Ólafur Sigurðsson

Björg­un­ar­sveit­ar­menn höfðu í mörgu að snú­ast á höfuðborg­ar­svæðinu í nótt á meðan hvassviðrið reið yfir. Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg þurfti að fara í þó nokk­ur út­köll en þeim hef­ur fækkað það sem af er morgni og fær­ast nú í aust­ur.

Kar­en Ósk Lár­us­dótt­ir verk­efna­stjóri hjá Lands­björg seg­ir út­köll­in flest hafa verið af hefðbundnu tagi og varðað fjúk­andi muni á borð við trampólín, þak­plöt­ur, rusla­tunn­ur og girðing­ar.

Til­kynn­ing þegar verið send út til ferðamanna

Að sögn Kar­en­ar er björg­un­ar­sveit­in með hefðbund­inn viðbúnað á Aust­ur­landi vegna þeirrr­ar rauðu viðvör­un­ar sem er vænt­an­leg á Aust­fjörðum klukk­an 12 í dag. Hún verður í gildi þar til klukk­an níu í kvöld. Þá tek­ur við app­el­sínu­gul viðvör­un fram eft­ir nóttu.

Til­kynn­ing hef­ur nú þegar verið send inn á Safe Tra­vel sem á að miðla nauðsyn­leg­um upp­lýs­ing­um um óveðrið til þeirra ferðamanna sem eru stadd­ir hér­lend­is. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert