Slökkvistarfi á Fagradalsbraut á Egilsstöðum er nú lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi.
Enn rýkur þó úr glæðum á svæðinu og verður brunavakt við verslunar- og þvottahúsnæði Vasks í kvöld og í nótt. Er einnig tekið fram að lokanir verði áfram á sumum stöðum næsta morgun, meðal annars þar sem vatnsslöngur liggja um og yfir götur.
Lögreglan biðlar til fólks að fara varlega í kringum brunavettvanginn og ítrekar að svæðið telst enn vinnusvæði slökkviliðs.