Bíl var ekið utan í vegrið á Þingvallavegi við Leirvogsá nú fyrir skömmu og fór lögreglu- og sjúkralið á vettvang í forgangsakstri, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Að svo stöddu er ekki vitað um alvarleika óhappsins eða hvort slys hafi orðið á fólki.