Um 50% slökkviliða uppfylla ekki settar kröfur til að geta sinnt reykköfun og slökkvistarfi innanhúss, ýmist með tilliti til búnaðar, þjálfunar, menntunar eða hæfnisskilyrða starfsmanna. 64% slökkviliða voru við úttekt í fyrra ekki með samþykkta brunavarnaáætlun. Staða brunavarnaáætlana var hvað lökust á Vestfjörðum og Norðvesturlandi þar sem aðeins tvö slökkvilið höfðu gilda áætlun.
Þetta kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um stöðu slökkviliða á Íslandi. Skýrslan var unnin í framhaldi af úttektum stofnunarinnar á starfsemi 34 slökkviliða í 68 sveitarfélögum sem voru framkvæmdar á síðasta ári.
Fram kemur að ekki eru öll sveitarfélög á Íslandi með slökkvilið sem er þannig skipulagt, mannað, menntað og þjálfað að það geti leyst af hendi með fullnægjandi hætti lögbundin verkefni. Ekki hafa öll slökkvilið til umráða fullnægjandi búnað til að geta sinnt verkefnum sínum. Húsnæði slökkviliða, með tilliti til baðaðstöðu starfsmanna, geymslu og þrifa á hlífðarfatnaði og búnaði þarfnast úrbóta að einhverju leyti í flestum landshlutum.
Á Íslandi eru fjögur slökkvilið sem hafa sólarhringsviðveru mannskapar á stöð, fimm hafa mannaða dagvakt og 24 slökkvilið eru eingöngu mönnuð útkallsliði.
Við úttektir voru níu slökkvilið á Íslandi með slökkviliðsstjóra í einungis 35% starfshlutfalli eða lægra. Þó hefur slökkviliðsstjórum í fullu starfi fjölgað síðan á árunum 2013-2015. Í ljósi ábyrgðarhlutverks skal slökkviliðsstjóri eða staðgengill hans ávallt vera á vakt eða á bakvakt og til staðar á starfssvæði slökkviliðsins. Hjá 30% slökkviliða landsins eru slíkar stjórnendavaktir ekki tryggðar, að því er kemur fram í skýrslunni.
Sveitarfélögum er skylt að sjá til þess að nægilegt vatn og vatnsþrýstingur sé fyrir hendi til slökkvistarfs og að til staðar sé sérstakur slökkvibúnaður þar sem hans er krafist. 55% slökkviliðsstjóra telja að þörf sé á að gera úrbætur á vatnsveitu og dreifikerfi á sínu starfssvæði til að tryggja að nægjanlegt vatn og vatnsþrýstingur sé til staðar til slökkvistarfs.
Fram kemur í skýrslunni að til ýmissa aðgerða þurfi að grípa, til að bregðast við þeirri stöðu sem er uppi hjá slökkviliðum landsins. Helstu tillögur HMS um úrbætur eru eftirtaldar: