Lögregla fer fram á gæsluvarðhald yfir þremur einstaklingum sem handteknir voru eftir að karlmaður lést eftir stunguárás á Ólafsfirði í nótt. Úrskurður um varðhald liggur ekki fyrir. Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra á Facebook.
Í færslunni segir að auk hins látna hafi einn einstaklingur verið á vettvangi með áverka og fékk hann aðhlynningu á sjúkrahúsi. Vettvangsrannsókn er lokið og hefur verið farið fram á réttarkrufningu yfir hinum látna.
Fram kemur að rannsókn málsins er í fullum gangi og miðar að því að upplýsa málsatvik. Lögregla telur sig hafa þá í haldi sem eru viðriðnir málið.