Kaffibarinn hlaut heiðursnafngift

Á mynd eru þau Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Dagur B. …
Á mynd eru þau Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og Matthijs Wouter, framkvæmdastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Ljósmynd/Aðsend

Kaffibarinn er einn af tuttugu og tveimur kvikmyndatökustöðum í Evrópu sem var valinn í ár af nýlega stofnaðri arfleiðfardeild Evrópsku kvikmyndaakademíunnar til hljóta heiðursnafngiftina „Treasures of European Film Culture.“

Kaffibarinn varð fyrir valinu vegna þess hlutverks sem barinn gegndi í kvikmyndinni 101 Reykjavík, en frumraun Baltasar Kormáks sem leikstjóra hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum. Hugmyndin að heiðursnafngiftinni er að vekja athygli á tökustöðum sem eru táknrænir fyrir evrópska kvikmyndagerð og veita þeim viðurkenningu.

Efnt var til sérstaks viðburðar vegna þessa fyrr í kvöld. Þar kom fram Matthijs Wouter framkvæmdastjóri European Film Awards (EFA) þar sem hann bauð fólk velkomið ásamt því að Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veittu aðstandendum kvikmyndarinnar 101 Reykjavík ásamt fulltrúum Kaffibarsins verðlaunaskjöld.

Þessi viðurkenning markar upphaf þess að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða haldin hér á landi í Hörpu 10. desember næstkomandi, en annað hvert ár er hún haldin í Berlín en þess á milli í öðrum evrópskum borgum.

Mikill heiður

„Það er mikill heiður að Kaffibarinn fái þessa viðurkenningu frá Evrópsku kvikmyndaakademíunni. Þegar kvikmyndin 101 Reykjavík kom út var Kaffibarinn aðalstaðurinn og þar hittumst við Hallgrímur Helgason reglulega. Þetta var heimili að heiman og fastagestir tóku að sér að leika í kvikmyndinni.

Það er virkilega gaman að Kaffibarinn skuli enn lifa góðu lífi eftir öll þessi ár. Það felast mikil tækifæri í því að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin skulu vera haldin í Reykjavík í ár og megum við búast við mikilli kvikmyndaveislu í desember,“ segir Baltasar Kormákur leikstjóri í tilkynningu vegna þessa.

Ein af perlum íslenskrar kvikmyndasögu

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir að 101 Reykjavík sé ein af perlum íslenskrar kvikmyndasögu og því sé gaman að heiðra Kaffibarinn.

„Hann er fyrir löngu orðinn eitt af kennileitum borgarinnar, aðdráttarafl fyrir ferðamenn og ég held nú líka að ansi margir Íslendingar eigi sína eigin Kaffibarssögu,” segir hún.

Á meðal tökustaða sem hafa verið heiðraðir má nefna bókabúðina í kvikmyndinni Notting Hill, kaffihúsið Café des Deux Moulins í Amélie og Trevi gosbrunnurinn í Róm sem spilaði stórt hlutverk í La Dolce Vita.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert