Á morgun verður ákveðið hvort óskað verði eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir tveimur mönnum sem nú eru í einangrun vegna ætlaðs undirbúnings hryðjuverka og vopnalagabrota. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari.
Gæsluvarðhald yfir mönnunum rennur út á fimmtudaginn og er rannsókn þess enn í fullum gangi. Ekki liggur fyrir ákvörðun um hvort óskað verði eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi.
Ólafur segir mikilvægt að ákæruvaldið rannsaki málið nægilega vel áður en óskað verður eftir áframhaldandi varðhaldi. „Það er rannsókn í gangi,“ segir Ólafur.
Ríkislögreglustjóri boðaði til blaðamannafundar í kjölfar þess að fjórir menn voru handteknir í Holtasmára í Kópavogi og á iðnaðarsvæði í Mosfellsbæ, grunaðir um undirbúning hryðjuverka, þann 23. september.
Tveir þeirra eru enn í gæsluvarðhaldi sem rennur út á fimmtudaginn líkt og fyrr segir.