Þrír voru fluttir á slysadeild í morgun til skoðunar eftir að vörubíll og jepplingur lentu saman á gatnamótum Nýbýlavegar og Birkigrundar, laust fyrir klukkan níu.
Þetta staðfestir Guðjón Guðjónsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Tveir slökkviliðsbílar og þrír sjúkrabílar voru sendir á vettvang en klippa þurfti ökumann jepplingsins út úr bifreiðinni. Einn farþegi var í jepplingnum þegar slysið átti sér stað.
Jepplingurinn er illa farinn en ekki er talið að neinn hafi slasast lífshættulega.