Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 177 þúsund í nýliðnum september samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða fjórða fjölmennasta september frá því mælingar hófust.
Brottfarir í september voru 76% af því sem þær voru í september 2018 þegar mest var.
Tæplega þriðjungur brottfara í september var tilkominn vegna Bandaríkjamanna. Brottfarir Íslendinga voru um 60 þúsund í september sem er hæsti fjöldi Íslendinga í september frá upphafi, að því er fram kemur á vef Ferðamálastofu.