Baldur S. Blöndal
Tveir menn eru í gæsluvarðhaldi vegna gruns um hlutdeild í manndrápi í Reykjavík.
Lögreglu barst tilkynning árdegis í gær um andlát sem talið er hafa borið að með saknæmum hætti, í póstnúmeri 105.
Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, í samtali við mbl.is í kvöld.
Báðir mennirnir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til fimmtudags.
Margeir kveðst ekki geta tjáð sig frekar um málið að svo stöddu þar sem rannsókn þess sé á viðkvæmu stigi.
Uppfært:
Samkvæmt tilkynningu lögreglu sem barst fjölmiðlum laust eftir klukkan tíu í kvöld fannst kona á sextugsaldri látin í bifreið við hús í Laugardal í gærmorgun. Tilkynning um málið barst lögreglu um hálfellefuleytið.
Lögregla hélt þegar á vettvang en konan var látin þegar að var komið.
Mennirnir tveir sem voru handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald eru á fimmtugsaldri.
Rannsókn málsins er að sögn lögreglu á frumstigi, en hún beinist m.a. að því hvort mennirnir hafi átt þátt í andláti konunnar.