Silli kokkur næstbestur í Evrópu

Silli kokkur ásamt fjölskyldu sinni.
Silli kokkur ásamt fjölskyldu sinni. Ljósmynd/Aðsend

Sig­valdi Jó­hann­es­son, Silli kokk­ur, hafnaði í öðru sæti í keppni um besta evr­ópska götu­bit­ann, Europe­an Street Food Aw­ard 2022, sem hald­in var í München í Þýskalandi um helg­ina. 

Þá hlaut hann fyrstu verðlaun í keppni um besta ham­borg­ar­ann og varð auk þess í öðru sæti þegar keppt var um „götu­bita fólks­ins“.

Gæsa­borg­ari með osti

Ham­borg­ar­inn sig­ur­sæli er gæsa­borg­ari með osti, trufflusósu, múltu­berj­um, blá­berj­um og kletta­sal­ati. 

Alls tóku 15 mat­reiðslu­menn þátt í þess­ari loka­keppni en þúsund­ir eru sagðar hafa sótt um og hundruð keppt í for­keppn­um. 

Loka­keppn­in í Evr­ópu hef­ur ekki farið fram frá ár­inu 2019 vegna kór­ónu­veiruf­ar­ald­urs­ins. Þá keppti Jömm fyr­ir Íslands hönd. For­keppn­in hér heima fór aft­ur á móti fram síðustu þrjú sum­ur og vann Silli kokk­ur í öll skipt­in.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert