Auglýsing braut gegn vönduðum stjórnsýsluháttum

Heilbrigðisstarfsfólk að störfum.
Heilbrigðisstarfsfólk að störfum.

Auglýsing um starf sjúkraliða hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands seint á síðasta ári var ekki fyllilega í samræmi við markmið reglna um efni auglýsinga um opinbert starf og braut því gegn vönduðum stjórnsýsluháttum.

Þetta er niðurstaða umboðsmanns Alþingis vegna kvörtunar yfir ráðningu í starfið. Sá sem kvartaði hafði sótt um starfið. Sagði hann að umsækjandinn sem var ráðinn hefði ekki fullnægt kröfu um framhaldsmenntun sjúkraliða.

Fjórir sóttu um

Fjórir sóttu um starfið og voru þeir allir með starfsleyfi sem sjúkraliðar en aðeins sá sem kvartaði hafði lokið framhaldsnámi sjúkraliða, sem var á sviði öldrunar.

Umboðsmaður Alþingis taldi ekki tilefni til að gera athugasemdir við það mat stofnunarinnar að sá umsækjandi sem var ráðinn hefði uppfyllt þau lágmarksskilyrði um menntun sem voru tilgreind í auglýsingunni, að því er kemur fram á vef umboðsmanns Alþingis.  

Auglýsingin hefði aftur á móti ekki verið nægilega skýr og misvísandi upplýsingar komið fram í henni. Þær kynnu að hafa leitt til þess að einhver sem uppfylltu hæfniskröfurnar hefðu hætt við að sækja um þar sem þau hefðu ekki framhaldsmenntun líkt og hæglega hefði mátt ætla af fyrirsögn auglýsingarinnar.

Umboðsmaður mæltist því til í áliti sínu að Heilbrigðisstofnun Norðurlands gætti framvegis að sjónarmiðunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert