Gefa 143 milljónir til endurreisnar Úkraínu

Stjórnarráðið.
Stjórnarráðið. mbl.is/Árni Sæberg

Íslensk stjórnvöld eru stofnaðilar að nýjum sjóði á vegum Alþjóðabankans sem er ætlað að styðja stjórnvöld í Úkraínu við að mæta efnahagslegum og samfélagslegum afleiðingum innrásar Rússlands og hefja enduruppbyggingu.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra tilkynnti um stofnaðild og framlag Íslands á sérstökum ráðherrafundi um stuðning við Úkraínu, sem haldinn var í tengslum við ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington á miðvikudag.

Selenskí ávarpaði fundinn

Framlag Íslands í sjóðinn nemur einni milljón bandaríkjadala eða um 143 milljónum króna, að því er fram kemur í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Segir þar að fundurinn hafi hafist á ávarpi Volodimírs Selenskí forseta Úkraínu og forsætisráðherrans Denis Smihal, í gegnum fjarfundarbúnað.

„Röktu þeir stöðuna og sögðu skipta miklu að umheimurinn brygðist við hertum árásum Rússa á óbreytta borgara og innviði landsins með því að standa enn þéttar við bakið á Úkraínu,“ segir í tilkynningunni.

Einn milljarður frá Íslandi

„Alþjóðabankinn, Evrópusambandið og stjórnvöld í Úkraínu gáfu út sameiginlega yfirlýsingu í síðasta mánuði þar sem fram kom að kostnaður við enduruppbyggingu Úkraínu nemi nú þegar 349 milljörðum bandaríkjadala. Sú tala eigi eftir að hækka eftir því sem stríðið dregst á langinn.

Íslensk stjórnvöld hafa heitið að veita að lágmarki einum milljarði króna á þessu ári til mannúðaraðstoðar og efnahagslegs stuðnings við Úkraínu. Þar af hafa um 360 milljónir runnið til verkefna á vegum Alþjóðabankans til viðbótar við þær 143 milljónir sem tilkynnt var um á miðvikudag. Nemur stuðningur Íslands til Úkraínu á vegum Alþjóðabankans því 503 milljónum króna á árinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert