Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur ákveðið að hætta rannsókn á tildrögum andláts farþega bifreiðar sem hafnaði utan vegar á Óshlíð árið 1973. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að ekkert bendi til annars en að farþeginn hafi látist af afleiðingum umferðarslyss.
Frá þessu greinir lögreglan á Facebook-síðu sinni. Auk ökumanns voru tveir farþegar í bifreiðinni sem hafnaði utan vegar, annar í framsæti og hinn í aftursæti. Hinn látni, sem var í aftursæti, hét Kristinn Haukur Jóhannesson og var aðeins nítján ára gamall.
Lögreglan á Vestfjörðum hefur undanfarið verið með ákveðna þætti til rannsóknar, svo sem ljósmyndir af bílflakinu sem blaðaljósmyndarar tóku á sínum tíma. Lögregla gerði einnig kröfu um að heimilað yrði að grafa upp líkamsleifar hins látna, með vitund og samþykki ættingja.
Líkamsleifar hins látna voru færðar til rannsóknar hjá réttarlækni sem hefur nú skilað lögreglu ítarlegri skýrslu um dánarorsök. Hefur lögregla sem fyrr segir ákveðið að hætta rannsókn málsins, með hliðsjón af niðurstöðu réttarlæknis og öðrum þáttum sem rannsakaðir voru.
Atvikið var á sínum tíma rannsakað sem umferðarslys, en í aprílmánuði í fyrra óskuðu nánustu ættingjar hins látna eftir því að málið yrði tekið upp á ný þar sem rannsókn málsins hefði verið ábótavant. Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hafnaði þeirri beiðni sökum þess að engin ný gögn hefðu borist. Ættingjar kærðu þá ákvörðun til ríkissaksóknara sem lagði fyrir lögregluna á Vestfjörðum að skoða ákveðna þætti.