Aukin skjálftavirkni í Mýrdalsjökli

Varað er við ferðum við Múlakvísl vegna gasmengunar.
Varað er við ferðum við Múlakvísl vegna gasmengunar. mbl.is/Sigurður Bogi

Í morgun kl. 07:54 varð skjálfti af stærð 3,0 í Mýrdalsjökli og annar kl. 12:10, en síðan í gær hefur verið vart við aukna skjálftavirkni í jöklinum.

Átta skjálftar hafa nú komið með stuttu millibili þar sem sá stærsti var af stærð 3,8, að fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Skjálftarnir eru allir staðsettir nærri sigkötlum 10 og 11 í austanverðri Kötluöskju.

Ekki er hægt að útiloka að hlaup muni hefjast í Múlakvísl og er varað við ferðum við ána og sérstaklega upptök árinnar, m.a. vegna gasmengunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert