Á morgun, mánudaginn 17. október, verður Hellisheiði lokað til austurs vegna framkvæmda. Hjáleið verður um Þrengsli og hámarkshraði lækkaður niður í 50 km á klst.
Þetta segir í tilkynningu frá Colas, verktakanum sem sér um framkvæmdirnar.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 9 til kl. 20.
„Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningunni.
Nánari upplýsingar um lokanirnar má nálgast hér fyrir neðan: