Ný stjórn var kjörin á 20. landsþingi Kvenna í Framsókn um helgina. Tvær nýjar konur tóku sæti í framkvæmdastjórn auk þess sem Guðveig Eyglóardóttir var kjörin formaður.
Guðveig Eyglóardóttir hefur verið oddviti Framsóknar í Borgarbyggð síðan 2014 og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsókn. Hún er forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð og formaður stjórnar í Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.
Þá var Guðveig í haust skipuð af innviðaráðherra sem formaður Byggðamálaráðs 2022-2026.
Guðveig hefur starfað um árabil í ferðaþjónustu og nú síðast sem hótelstjóri á Hótel Hamri í Borgarnesi. Guðveig er með BA. í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum og MLM í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Auk Guðveigar voru kjörnar í framkvæmdastjórn:
Berglind Sunna Bragadóttir
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Unnur Þöll Benediktsdóttir
Til vara:
Anna Karen Svövudóttir
Karítas Ríkharðsdóttir