Kynnti áform um sameiningu

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti ákvörðun sína um sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar fyrir ríkisstjórn í morgun.

Eftir hádegi hélt ráðherra fundi með starfsmönnum beggja stofnana þar sem tilkynnt var um ákvörðunina.

Við sameiningu munu allir starfsmenn flytjast yfir í nýja stofnun og verður áhersla lögð á að fyrirliggjandi mannauður og þekking haldist í málaflokknum, að því er segir í tilkynningu.

Réttindi og skyldur starfsfólks munu færast til nýrrar stofnunar, en umræða um skipulag mun bíða nýs forstöðumanns.

Engin breyting verður gerð á tilhögun starfsstöðva í sameiningarferlinu eða staðsetningum starfsmanna. Sameinuð stofnun mun hafa um 130 stöðugildi og getur aðalskrifstofa verið staðsett á öllum meginstarfsstöðvum.

Ekki er gert ráð fyrir að forstöðumaður hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert