Finnsku forsetahjónin fengu góðar móttökur

Finnsku forsetahjónin fengu góðar móttökur á Bessastöðum.
Finnsku forsetahjónin fengu góðar móttökur á Bessastöðum. mbl.is/Árni Sæberg

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eliza Reid, forsetafrú, tóku á móti forseta Finnlands, Sauli Niinistö, og Jenni Haukio, forsetafrú, á Bessastöðum í morgun.

Þau eru stödd hér á landi í opinberri heimsókn ásamt fylgdarliði og halda þau af landi brott á föstudaginn.

Að lokinni heimsókninni á Bessastaði var förinni heitið á Alþingi. Þar voru fyrirhuguð fundarhöld með Birgi Ármannssyni, forseta Alþingis, og varaforsetum. Að því loknu býður Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gestunum og fleirum til hádegisverðar í ráðherrabústaðnum.

Eftir hádegi verður opinn málfundur, Nordic Cooperation in Testing  Times, í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur, þar sem forseti Finnlands og forseti Íslands fjalla um norræna samvinnu á átakatímum. Að loknum umræðum forsetanna fara fram pallborðsumræður þar sem ráðherrar Norðurlandamála í ríkisstjórnum Íslands og Finnlands og fræðimenn við  Háskóla Íslands ræða málefnið. Viðburðurinn er opinn almenningi á meðan húsrúm leyfir, að því er kemur fram í tilkynningu.

Sama gildir um opið bókmenntasamtal með forsetafrúm Íslands og Finnlands sem hófst í Norræna húsinu kl. 10:20. Fundurinn ber yfirskriftina Shifting Perspectives – Literature and National Identities. Þar ræða þær Eliza  Reid og Jenni Haukio, sem báðar hafa lagt fyrir sig ritstörf, við Eirík Örn Norðdahl rithöfund og Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur skáld um íslenskan  og finnskan bókmenntaarf og hvernig hann mótar sjálfsmynd þjóðanna.

Um kvöldið verður gestunum boðið til hátíðarkvöldverðar á Bessastöðum ásamt fulltrúum íslenskra stjórnvalda, fulltrúum úr viðskipta- og menningarlífi og aðilum sem tengjast samstarfi landanna.

Á morgun ferðast íslensku forsetahjónin með finnsku sendinefndinni um Vesturland. Farið verður í ísgöngin á Langjökli og  forsetahjónum Finnlands gefið færi á að sjá með eigin augum hvernig  jökullinn hefur hopað á undanförnum árum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert