Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 voru veittar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir fallegar lóðir og vandaðar endurbætur á eldri húsum í borginni.
Freyjugata 41- Ásmundarsalur.
Í tilkynningu Reykjavíkurborgar kemur fram að lóðin við Ásmundarsal sé stílhrein, minimalísk og opin.
„Hún tónar einstaklega vel við bygginguna sem er eftir Sigurð Guðmundsson arkitekt. Við vegginn er látlaus bekkur sem er einnig vegasalt og kemur því notendum sínum skemmtilega á óvart. Á grasflötinni eru ýmis listaverk sem gestir og gangandi vegfarendur fá að njóta, en lóðin er síbreytileg eftir því hvaða listaverk prýða hana.“
Nauthólsvegur 83
„Lóðin hefur góða tengingu við nærliggjandi umhverfi og býður notendur sína velkomna með látlausum bekkjum, grilli og hjólaskýli. Gróðurinn á svæðinu er fallegur og nokkuð fjölbreyttur. Umhverfið í heild sinni er aðlaðandi, og gott jafnvægi er milli hins manngerða og grænna svæða.“
Stýrimannastígur 9
Í tilkynningu Reykjavíkurborgar er tekið fram að endurgerðin á húsinu væri einstaklega fögur á bæði húsi og garði.
„Minnstu smáatriði fá að njóta sín og listaverk eftir Kristin Hrafnsson er staðsett fyrir framan aðalinngang hússins. Vandað er til plöntuvals og einn fallegasti álmur í Reykjavík er staðsettur í bakgarði. Heildarútlit og efnisval lóðar er fagurt og fágað og er í fallegu samspili við húsið, sem gerir heildarásýndina einstaka.“
Mjóstræti 6
„Húsið var byggt árið 1919 og hefur hátt varðveislugildi. Það er næst stærsta steinhlaðna húsið í Reykjavík og á sér m.a. sögu sem prentsmiðja. Í tilefni af 100 ára afmæli hússins hafa eigendur fært það nær upprunalegu útliti sínu, m.a. með því að breyta gluggunum. Húsið hefur endurheimt glæsilegan svip sinn og breytingin er til mikillar prýði fyrir götumyndina.“
Vesturgata 51A (Stefánshús)
„Húsið var byggt árið 1882 og var fyrsti eigandi þess Stefán Þórðarson. Undanfarin ár hafa staðið yfir miklar endurbætur á húsinu með það að markmiði að færa það nær upprunalegu útliti. Húsið á sér langa og áhugaverða sögu og hefur gengið í gegnum margar útlitsbreytingar í gegnum tíðina. Húsið er nú tjargað, gluggar hvítmálaðir og hleðslan í grunni þess sem hafði verið múrhúðuð fær nú aftur að njóta sín. Árangurinn er til fyrirmyndar.“