Bjarni: Hádegisverðir síst varpað rýrð á störf Bankasýslu

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kvaðst ekki telja það tiltökumál …
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kvaðst ekki telja það tiltökumál að rauðvínsflöskur öðru hvoru megin fimmþúsundkallsins væru gefnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Á dögunum skiluðu starfsmenn Bankasýslunnar minnisblaði sem fjárlaganefnd hafði óskað eftir fyrir rúmu hálfu ári síðan um gjafir og fríðindi sem þeir höfðu fengið í tengslum við störf sín við sölu á hlutum í Íslandsbanka,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, er hún spurði Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, út í gjafmildi í garð Bankasýslufólks í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun.

Á téðu minnisblaði kemur fram að starfsmennirnir hafi þegið dýra kvöldverði, vínflöskur, konfektkassa og „forláta kokteilgerðarsett“ eins og þingmaðurinn orðaði það í fyrirspurn sinni, auk ótilgreinds fjölda hádegisverða fyrir ótilgreint verð.

„Þessar gjafir, sem samtals hlaupa á hundruðum þúsunda króna, komu frá umsjónaraðilum, fjármálaráðgjöfum, lögfræðilegum ráðgjöfum, söluráðgjöfum og söluaðilum sem allir eiga það sameiginlegt að hafa komið að vinnu Bankasýslunnar við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka,“ sagði Þórhildur.

Hefur ekkert með sölu ríkiseignar að gera

Vísaði hún því næst í þau ummæli ríkisstjórnarinnar í apríl þar sem sagt hefði að traust og gagnsæi yrði að ríkja við sölu á eignum ríkisins.

„Ég vil því spyrja hæstvirtan fjármálaráðherra: Er það eðlilegt að starfsmenn Bankasýslunnar þiggi gjafir í tengslum við störf sín?“ lauk Þórhildur fyrirspurninni.

„Virðulegi forseti. Stutta svarið við þessu er að ef um slíkar gjafir er að ræða þurfa þær að vera innan hóflegra marka og í eðlilegum tengslum við störfin,“ svaraði Bjarni. Honum þættu ókeypis hádegisverðir síst varpa rýrð á störf Bankasýslunnar.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður ræddi kokteilgerðarsett Bankasýslunnar við fjármálaráðherra.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður ræddi kokteilgerðarsett Bankasýslunnar við fjármálaráðherra. mbl.is/Hari

„Við skulum hafa það í huga hér að það viðskiptasamband sem háttvirtur þingmaður er að vísa til, sem er Bankasýslan annars vegar og söluráðgjafar hins vegar, snýst í raun og veru um viðskiptamál, hefur ekkert með hina eiginlegu sölu ríkiseignarinnar að gera sem endar hjá öðrum aðilum, það er að segja kaupendum eignarinnar,“ sagði Bjarni.

Spurði einfaldrar spurningar

Sagði hann væntanlega verið að gefa í skyn að menn væru að kaupa sér einhverja velvild til að fá að taka þátt í sölumeðferðinni og þiggja fyrir það einhverja þóknun. Stjórn Bankasýslunnar bæri ábyrgð á heildareftirliti með slíkri samningagerð og mögulegum hagsmunaárekstrum er kynnu að skapast.

„Stutta svarið við því hvort það sé heppilegt eða æskilegt að um sé að ræða gjafir, þóknanir af einhverju tagi, hvort sem það er í formi hádegisverða eða með öðrum hætti, þá er stutta svarið mitt einfaldlega að það ber að fara mjög varlega í öllu slíku,“ sagði ráðherra.

Steig Þórhildur nú í pontu á ný. „Ég spurði hann einfaldrar spurningar, hvort það væri eðlilegt að Bankasýslan hefði þegið þessar gjafir sem ég taldi allar upp. Þessar gjafir sem meðal annars voru gefnar af söluaðilum og söluráðgjöfum sem til dæmis höfðu það hlutverk að skilgreina hverjir teldust hæfir fjárfestar og hverjir ekki,“ sagði Þórhildur.

Hún kvað Bankasýslu ríkisins ekki fjármálafyrirtæki heldur opinbera stofnun og bæri starfsfólki hennar að fylgja siðareglum starfsmanna ríkisins sem meðal annars kvæðu á um að forðast hagsmunaárekstra.

„Er þetta í alvörunni eðlilegt, að Bankasýsla ríkisins, sem selur eignir ríkisins, þiggi gjafir frá fólki sem hefur beinlínis hagsmuni af því að gefa þeim [sic] gjafir?“ spurði Þórhildur.

Aðgát skuli höfð

Bjarni svaraði því til að einfaldar reglur væru bestar í svona málum. „Í því samfélagi sem við búum í og í þeirri menningu sem hefur skapast í þessu samfélagi þykir það nú ekki vera mjög stórt tiltökumál ef einhver sendir öðrum rauðvínsflösku sem getur kannski haft verðmæti öðru hvoru megin við 5.000 krónur,“ sagði ráðherra.

Kvaðst hann ekki telja slíkar gjafir líklegar til að hafa úrslitaáhrif á hvort fólki væri treyst til að taka sér mikilvægt hlutverk eins og hér væri til umræðu.

„Þetta er alltaf matsatriði og við höfum sjálf sett okkur reglur hér þingmenn og ráðherrar í þessum efnum sem gera ráð fyrir því að gjafir sem eru svona tækifærisgjafir geta verið þess eðlis að ekki þurfa að halda sérstaka skrá yfir þær, en aðrar sem eru yfir ákveðnu verðgildi þurfi að gefa upp [...] Þetta er á endanum matsatriði, einfaldar reglur eru bestar og það ber að fara varlega, sérstaklega þegar um er að ræða svo mikla hagsmuni sem eru undir hér,“ lauk Bjarni svari sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert