Ítrekaður utanvegaakstur á friðlýstu svæði

Ein af fjölda mynda sem starfsmenn Umhverfisstofnunar tóku á svæðinu …
Ein af fjölda mynda sem starfsmenn Umhverfisstofnunar tóku á svæðinu og sýna utanvegaakstur. Ljósmynd/UST

Ítrekaðar ábendingar hafa komið til Umhverfisstofnunar undanfarið vegna ólöglegs aksturs bifreiða og torfærutækja utan vegar við Vigdísarvallaleið og í nágrenni Kleifarvatns. Flest atvikin snúa að akstri mótorkrosshjóla, en þetta hefur skilið eftir sig breiða og áberandi slóða sem setja mikið mark á landslagið og skemmt gróðurfar.

Víða eru skilti til að ítreka að akstur utan vega …
Víða eru skilti til að ítreka að akstur utan vega sé bannaður. Slíkt virðist þó ekki stoppa ökumenn sem hafa jafnvel fellt sum skiltanna. Ljósmynd/UST

Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að stofnunin hafi bæði fengið ábendingar auk þess að starfsmenn hennar hafi sjálfir orðið vitni að utanvegaakstrinum. Með torfærutækjum er vísað til mótorkrosshjóla, fjórhjóla og buggy-bíla, en sem  fyrr segir telur stofnunin flest atvikin tengjast mótorkrosshjólum.

Utanvegaaksturinn er við Vigdísarvallaveg og við Kleifarvatn.
Utanvegaaksturinn er við Vigdísarvallaveg og við Kleifarvatn. Ljósmynd/UST

Víða eru skilti og merkingar um að akstur sé ekki heimilaður utan vega á svæðinu, en slíkt er ítrekað virt að vettugi og skilti jafnvel felld niður. „Þetta ólöglega athæfi veldur miklum skemmdum á gróðurfari og jarðminjum á svæðinu, ásamt því að hafa veruleg áhrif á upplifun annarra sem um svæðið fara til að njóta útivistar í annars óspilltri náttúrunni,“ segir í tilkynningunni.

Aksturinn skilur eftir sig breiða og áberandi slóða sem setja …
Aksturinn skilur eftir sig breiða og áberandi slóða sem setja mikið mark á landslagið og skemmt gróðurfar. Ljósmynd/UST

Svæðið sem um ræðir er friðlýst sem Reykjanesfólkvangur, en meginmarkmið fólkvanga er að tryggja landsvæði til útivistar og almenningsnota. Innan fólkvangsins eru fjölmargar merkilegar jarðminjar, t.d. mosavaxin nútímahraun, gígaraðir og hellasvæði.

Sjá má för upp fell og hóla utan vega á …
Sjá má för upp fell og hóla utan vega á svæðinu. Ljósmynd/UST

Í gegnum svæðið liggja tveir vegir; Krýsuvíkurleið og Vigdísarvallaleið og frá þeim liggja nokkrir styttri, afmarkaðir og merktir afleggjarar. Akstur vélknúinna ökutækja utan þessara vega er ólöglegur samkvæmt 31. grein náttúruverndarlaga. Ekki er heimilt að aka á gönguleiðum svæðisins eða eftir þeim slóðum sem akstur torfærutækjanna hefur myndað.  

Akstur utan vega er bannaður með lögum.
Akstur utan vega er bannaður með lögum. Ljósmynd/UST

Í myndunum sem fylgja má sjá ummerki utanvegaaksturs við Vigdísarvalalleið og í Breiðdal, norður af Kleifarvatni, en þær voru teknar af starfsfólki Umhverfisstofnunar í október og september.

Förin sjást víða á svæðinu.
Förin sjást víða á svæðinu. Ljósmynd/UST
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert