Fyrsti vinningurinn gekk ekki út í gær en hann nam 11,7 milljörðum króna.
Fjórir skipta með sér öðrum vinningi, tveir frá Þýskalandi, einn frá Póllandi og einn frá Hollandi. Fá þeir um 85,3 milljónir hver í sinn hlut.
Sex fengu þriðja vinning og fær hver þeirra um 32,1 milljónir í vasann. Tveir þeirra voru keyptir í Þyskalandi en hinir frá Finnlandi, Slóvakíu, Svíþjóð og Króatíu.
Einn heppinn Íslendingur fékk fimm réttar í réttri röð í jóker kvöldsins og vann hann 2 milljónir.
Þá var einn með annan vinning í jóker og fær hann 100 þúsund krónur að launum. Miðinn var keyptur á lotto.is.