Agla María Albertsdóttir
Skarphéðinn Steinarsson, fráfarandi ferðamálastjóri, segir að öryggismál séu forgangsmál í ferðaþjónustunni og að honum finnist vel koma til greina að loka Kirkjufellinu yfir vetrartímann.
Banaslys varð á Kirkjufelli í Grundarfirði í vikunni en undanfarin ár hafa verið nokkur banaslys auk þess sem björgunarsveitir hafa í þó nokkur skipti þurft að bjarga fólki niður sem hefur annað hvort lent í sjálfheldu eða slysi.
Aðspurður um hætturnar sem geti fylgt fjölgun ferðamanna yfir vetrartímann og slysahættuna sem geti fylgt erfiðum aðstæðum á vinsælum ferðamannstöðum eins og Kirkjufelli í Grundarfirði segir Skarphéðinn:
„Ef Kirkjufellið reynist vera þannig staður að það sé algjörlega út í hött að klöngrast á því að vetri til þá finnst mér að það eigi að skoða það fyrir alvöru að loka því. Svona slys eru óásættanleg og ég veit að landeigendur eru að huga því."