Risastór furðufluga hangir nú í miðri Kringlunni og vekur athygli gesta, en um er að ræða listaverk eftir Öldu Ægisdóttur.
Alda, sem er 23 ára myndlistarnemi við Listaháskóla Íslands, hefur í samstarfi við Kringluna búið til fjögurra metra langa flugu sem mun hanga í Kringlunni til og með 25. október.
„Mér finnst þetta verk sérstaklega spennandi af því að ég vil gjarnan að listin mín sé aðgengileg fyrir almenning. Það er svo afmarkaður hópur sem mætir allajafna á listasýningar, og fólkið sem ég vil ná til eru ekki endilega þeir sem hafa stúderað myndlist, til dæmis hafa börn verið mjög hrifin af verkum mínum,“ segir Alda.
Hún telur listina gegna mikilvægu hlutverki við að skína ljósi á fallegu og glaðlegu hliðar lífsins á tímum sem þessum þar sem margt slæmt er að gerast í heiminum.
Flugan tilheyrir heimi sem Alda hefur verið að þróa með innblæstri frá náttúrunni, teiknimyndum og öðrum myndlistarmönnum. Alda er með sýningu sem heitir Útópía á Borgarbókasafninu Grófinni með verkum sem tilheyra sömu veröld, en þeirri sýningu lýkur á morgun, sunnudag.