„Gróf aðför“ ef frumvarpið nær fram að ganga

Halldóra Sveinsdóttir, formaður Bárunnar.
Halldóra Sveinsdóttir, formaður Bárunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Trúnaðarráð stéttarfélagsins Bárunnar fordæmir frumvarp til laga um félagafrelsi á vinnumarkaði, sem var lagt fram af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, annarra en ráðherra og forseta Alþingis.

Fram kemur í ályktun, sem var samþykkt á fundi ráðsins í gær, að nái frumvarpið fram að ganga yrði það gróf aðför að launafólki, starfsemi stéttarfélaga og vinnumarkaðsmódelinu.

„Trúnaðarráði þykir furðu sæta í byrjun kjarasamningsviðræðna að fá þessa köldu gusu framan í launafólk,” segir í ályktuninni, en yfirlýst markmið frumvarpsins er að tryggja félagafrelsi á vinnumarkaði.

Ályktunin í heild sinni:

„Fundur trúnaðarráðs Bárunnar, stéttarfélags sem haldinn var 24.10 2022 fordæmir frumvarp til laga um félagafrelsi á vinnumarkaði, lagt fram af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, annarra en ráðherra og forseta þingsins.

 Trúnaðarráði þykir furðu sæta í byrjun kjarasamningsviðræðna að fá þessa köldu gusu framan í launafólk.

Gildissvið frumvarpsins er allur vinnumarkaðurinn, og er því frumvarpinu ætlað að ná til bæði almenns og opinbers vinnumarkaðar.

Yfirlýst markmið frumvarpsins er að tryggja félagafrelsi á vinnumarkaði, nánar tiltekið neikvætt félagafrelsi, þar sem stéttarfélög eiga að vera á „félagsmannaveiðum“ .

Tilgangur stéttarfélaganna er að sameina launafólk, vinna að sameiginlegum hagsmunum launafólks, gæta réttar launafólks í hvívetna og vinna að fræðslu og menningarmálum.

Næði þetta frumvarp fram að ganga yrði það gróf aðför að launafólki, starfsemi stéttarfélaga og vinnumarkaðsmódelinu sem hefur verið góð sátt um á Íslandi og aðrar þjóðir hafa horft til með virðingu."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert