Í lok þriðja ársfjórðungs þessa árs bjuggu 385.230 manns á Íslandi, þar af 198.280 karlar og 186.840 konur, auk þess sem kynsegin/annað voru 120. Landsmönnum fjölgaði um 3.860 á ársfjórðungnum.
Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 245.850 manns en 139.380 á landsbyggðinni, að því er kemur fram á vef Hagstofunnar.
Á þriðja ársfjórðungi í ár fæddust 1.200 börn en 650 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 3.270 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 150 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 3.410 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 420 manns á þriðja ársfjórðungi.
Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 720 íslenskir ríkisborgarar af 950. Af þeim 1.270 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, eða 380 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (240), Noregi (130) og Svíþjóð (190), samtals 560 manns af 800.
Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 1.150 manns til landsins af alls 4.680 erlendum innflytjendum. Úkraína kom næst en þaðan fluttust 480 erlendir ríkisborgarar til landsins. Erlendir ríkisborgarar voru 62.990 eða 16,4% af heildarmannfjöldanum.