Manndrápsmál í Ólafsfirði í byrjun mánaðarins er enn í rannsókn og ekki er búið að senda málið til ákærusviðs. Þetta staðfestir Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, í samtali við mbl.is.
Upprunalega voru fjórir aðilar handteknir vegna manndrápsins en aðeins einn situr í gæsluvarðhaldi. Landsréttur staðfesti í síðustu viku áframhaldandi gæsluvarðhald og mun sakborningurinn því sæta gæsluvarðhald til 7. nóvember.