Landssamband íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) og Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hafa tilkynnt um samstarf í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning.
Í sameiginlegri tilkynningu segir að samstarfið nái til hátt í 90 þúsund einstaklinga sem starfa á almennum vinnumarkaði innan tuttugu stéttarfélaga.
„Mjög ríkur vilji er innan beggja sambanda að gera sameiginlega atlögu að nýjum kjarasamningi þar sem áherslan verður á að auka kaupmátt og tryggja stöðugleika í efnahagslífinu,“ segir í tilkynningunni.
VR er meðal félaga innan LÍV en Efling og Verkalýðsfélag Akraness eru bæði innan SGS.