Erfiðara verður að finna bílastæði í miðbæ Reykjavíkur sem ekki þarf að greiða gjald fyrir innan tíðar en umhverfis- og skipulagsráð borgarinnar samþykkti tillögu á fundi í gær sem kveður á um að stækka gjaldsvæðin. Er einkum um að ræða stækkun á gjaldsvæði 2, en einnig á gjaldsvæði 1 og 3. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
„Niðurstöður talninga sýna mikla og stöðuga nýtingu bílastæða á jöðrum gjaldsvæða, sem gefa tilefni til að stækka gjaldsvæði á tilgreindum stöðum í samræmi við verklagsreglur,“ segir í tilkynningunni.
Tillagan hefur þegar verið vorin undir og hlotið samþykki lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en hún tekur þó ekki gildi fyrr en eftir samþykki borgarráðs og birtingu.
Þá þarf að koma upp viðeigandi merkingum og greiðslubúnaði þar sem þörf er á áður en hægt verður að innheimta gjald í samræmi við tillöguna.
Þá geta íbúar á gjaldskyldum svæðum sótt um íbúakort að uppfylltum vissum skilyrðum. Íbúakort gefur handhafa þess heimild til þess að leggja bifreið sinni án endurgjalds á gjaldskyldu svæði innan gildissvæðis korts síns.
Um er að ræða eftirfarandi stækkanir gjaldsvæða:
1. Gjaldsvæði 1
a. Grettisgata milli Rauðarárstígs og Snorrabrautar
2. Gjaldsvæði 2
a. Hrannarstígur
b. Öldugata, Bárugata, Ránargata og Vesturgata á milli Ægisgötu og Stýrimannastígs
c. Stýrimannastígur
d. Blómvallagata
e. Ásvallagata og Sólvallagata austan Hofsvallagötu
f. Hávallagata milli Hofsvallagötu og Blómvallagötu
g. Tjarnargata frá nr. 33 að Hringbraut
h. Bjarkargata
i. Baldursgata frá Freyjugötu að Skólavörðustíg
j. Lokastígur og Þórsgata austan Baldursgötu
k. Inngarður afmarkaður af Laugavegi, Rauðarárstíg og Bríetartúni, Skúlagarður
3. Gjaldsvæði 3
a. Baldursgata og Bragagata frá Nönnugötu að Freyjugötu
b. Freyjugata frá Baldursgötu að Njarðargötu